15.02.2009 07:58:25 / Norm
A Communist died and since he was a honest man albeit atheist, he was sentenced to rotate spending one year in Hell and one year in Heaven. One year passed and Satan said to God : "Take this man as fast as possible, because he turned all my young demons into Young Pioneers, I have to restore some order." Another year passed, Satan meets God again and tells him : "Lord God, it's my turn now." God replied : "First of all, don't call me Lord God, but instead Comrade God; second, there is no God; and one more thing - don't distract me or I'll be late to the Party meeting."
»
11.01.2009 09:14:41 / Norm
.....hvaða 2 leikmenn eru þeir einu sem hafa skorað í 5 efstu deildum enska boltans? Þá er utandeildin tekinn með í spilið?
A.
»
04.01.2009 12:40:20 / Norm
...sá þetta í Mogganum um daginn. Nokkrir skemmtilegir hagyrðingar settu saman línur vegna mótmæla tveggja berrassaðra kvenna á Lækjartorgi, sem vildu fremur vera berholda en að klæðast loðfeldum. Davíð Hjálmari Haraldssyni varð að orði:
Kona hljóp um kuldablá,
klæddist eigin skinni,
Vörtu hafði væna á
vinstri rasskinninni 
Björn Ingólfsson orti að bragði:
Ungfrúnum var ekkert kalt,
allvel þoldu næðinginn,
Vildu sýna á sér allt,
utan blessuð loðskinnin 
Þá Hallmundur Kristinsson:
Eigin sjón mér illa brást,
Af því beið ég hnekki,
Þessa vörtu sem þú sást,
sá ég bara ekki! 
Loks Magnús Ólafsson frá Sveinsstöðum:
Fá að líta fagurt skinn
fannst nú Davíð gaman.
Var nú ekki væni minn
vartan stærri að framan?

kv. A
»
19.11.2008 16:55:08 / Norm
....sem ég var að lesa á SKYsport við Gerard PIQUE, leikmann Barcelona og fv. leikmann Man. Utd. Þar fer hann síður en svo fögrum orðum um líkamlegt ástand fyrrum liðsfélaga sinna og einnig, það sem kom mér svosem ekki á óvart, mállýsku hins aldna stjóra liðsins, Alex Ferguson. Hann segir m.a. : "Það var eitthvað meiriháttar skrýtið í gangi hjá United. Allir fengu að borða það sem þeir vildu. Á tveggja vikna fresti vorum við tekknir í fituprósentu tékk. Það kom mér á óvart að engin leikmannanna skyldi brjóta vélarnar eftir allt hamborgaraátið og bjórþambið.
"Stjórinn Alex talaði ensku með skoskum hreim sem hljómaði einsog kínverska í eyrum mér. En ég var ekki sá versti þarna að skilja hann og þarna eru leikmenn sem skilja hann ekki enn". Hann vildi þó taka fram að hann væri mjög sáttur með skiptin yfir í Utd og sá tími hefði kennt sér mikið. En draumurinn hafi alltaf verið að spila fyrir liðið sem hann hafði haldið með frá barnæsku, Barcelona.
Þrátt fyrir að hafa spilasð undir handleiðslu Sir Alex, vill Pique meina að núverandi þjálfari hans hjá Barca, Pep Guardiolas sé besti stjóri sem hann hafi haft. "Gaurdiola er nákvæmasti þjálfarinn og gjörsamlega með boltann "á heilanum". Það er heiður að spila fyrir hann. Þúsund dæmi eru til vitnis um afhverju hann er svona góður. Nákvæmnisatriðin á æfingum, upplýsingar hans um mótherjana, og eilíf hvatning hans."
Já, gaman að þessu

A.
»
11.10.2008 16:46:26 / Norm
....ætla ekki að fara koma með eitthvað pólitískt þras, nenni ekki að fá 72 comment frá Birki, nei djók
Sá þennan snilldarbrandara í Fréttablaðinu í dag, algjört möst að lauma honum með:
An American said:
"We have George Bush, Stevie Wonder, Bob Hope and Johnny Cash."
And an Icelander replied:
"We have Geir Haarde, no Wonder, no Hope, and no Cash."
kv. AE
»
29.09.2008 09:52:31 / Norm
..get bara ekki losnað við það úr hausnum á mér, svo sem skiljanlegt. Heyrði það snemma í sumar, greip mig strax, dreif mig heim og "náði" í það. Svo er það líka svo kynþokkafullt, enda kannski bendir nafnið líka til þes
hef aldrei verið sérlega mikill aðdáandi þessarar hljómsveitar, þó ég dýrki gjörsamlega söngröddina hjá Caleb. Hölli vinur minn hefur séð tónleika með þeim og kom heim með disk í farteskinu, afar hrifinn. En þetta lag er enn að hljóma í mínum græjum og er komið í möppuna yfir lög sem ég fæ aldrei leið á.......
http://www.youtube.com/watch?v=HHhhcKxflMY
»
06.09.2008 15:22:22 / Norm
...o.k., það voru margir karlmenn í sextugs afmælisveislu Heiðars snyrtis
Segir kannski meira en mörg orð
Sem var, by the way, haldið eftir að maðurinn var búin að ljúka sér af við vinnu sína sem fólst í því að kynna nýjan.....jú, hvað haldiði,kynna nýjan ILM, takk fyrir.:!
Er reyndar aukavinnan hans, þar sem hann starfar auk þess sem "flugfreyja" hjá Iceland Express
Hvað ætli yrði haldið um mig héldi ég næsta afmæli mitt með eintómum kellingum, hmmm spurning...já er það ekki
Sé mig standandi á miðju gólfinu í Lyf og heilsu að kynna nýjasta Ilmvatnið þeirra. Og svo rokinn inná Akureyri um kvöldið beint upp í næstu vél til að þjóna farþegunum, ögn trúlegt
Sé kannski einn mann fyrir mér í snarhasti sem gæti kóperað manninn, .......jú akkúrat - Jónsi
kv. AE
»
22.08.2008 22:24:26 / Norm
....verður maður ekki alltaf að koma með svona tilkynningar um leið og færi gefst til? Skilst það allavegana

En í gær fæddist okkur þessi líka yndislega og gullfallega dóttir, þ.e.a.s. kl. 19:15. Verður svo ekki alltaf að fylgja með stærðin og svoleiðs...4090 gr og 53 cm. 4090 gr er 16 merkur, fyrir þá sem vilja frekar hafa það á þann vegin. Móður og barni heilsast vel, föður bara skratti vel líka

Því miður fylgja engar myndir, ekki á þessarri síðu en gruna að Maja eigi eftir að lauma inn "bunch" af myndum á barnalandssíðuna.
Má svosem fylgja með að ungur læknanemi tók Maju í eitthvað monitor test í miðju ferlinu, sökum náms sína, var skíthræddur um að hann myndi tengja þessi skaut við hausinn á mér, þakka nú bara Guði fyrir að svo gerðist ekki þar sem ég hefði sjálfsagt í framhaldinu verið sendur beint á geðdeildina hinum megin við ganginn og væri þar sjálfsagt enn

kv. AE
»
12.08.2008 00:28:05 / Norm
.....og enn höldum við okkur við landsliðin. Tvennt sem mér datt í hug, og það er um fljótustu mörk skoruð á HM í fótbolta.
Nr. 1 - Hver er fljótastur í sögunni til að skora mark í leik á HM, hvaða tími, hvaða ár, gegn hverjum, hvaða umferð og hver lagði upp markið?
Nr. 2 - Hver er fljótasti varamaðurinn til að skora mark í leik á HM, hvaða tími, gegn hverjum og hvaða ár?
Þarf að sjálfsögðu ekki að taka það fram að við erum að tala um lokakeppni HM
og svo muna, bannað að Googla, allavega ekki strax, bara miklu skemmtilegra 
»
09.07.2008 18:04:00 / Norm
.....fyrir ykkur þarna úti sem allt þykist vita um fótbolta. En spurningin er svona: Nefnið þá 5 leikmenn sem hafa náð þeim merka áfanga að hafa spilað með liðum í efstu deild á Spáni, Ítalíu, Englandi og Þýskalandi?
Já, ok kannski dáldið erfið. Skal gefa ykkur smá vísbendingar:
1. Einn þeirra brenndi af gríðarlega mikilvægri vítaspyrnu fyrir land sitt á 95 mín, sem hefði annars komið landi hans á HM.
2. Einn þessara herramanna er skandinavi eins og ég og þú.
3. Einn þessara leikmanna er ansi skrautlegur og auðþekktur á velli og jafnvel þekktasta nafnið af þeim öllum (ég svosem veit ástæðuna fyrir því)
4. Þeir tveir síðustu spiluðu saman með afar skemmtilegu landsliði sinnar þjóðar og hreint frábæru vægast sagt, sem kom skemmtilega á óvart á ákveðnu stórmóti og áttu þeir stóran þátt í þeirri velgengni og annar þeirra var á þeim tíma talinn einn allra besti leikmaður Evrópu í sinni stöðu.
Jæja, fleiri vísbendingar fáið þið ekki enda er þetta ansi mikil hjálp sem ég veiti ykkur svo þið eigið alls ekki að þurfa að "Googla" svarið. Enda er það bara fúlt og svindl. Jæja leggið nú höfuðið vandlega í bleyti, lesendur góðir.
kv. A
»
19.06.2008 22:36:14 / Norm
til að koma í veg fyrir misskilning og illt umtal, að það sem fór fram á milli mín og Rönnu á salerni veitingastaðarins Bakaríið, var með fullu samþykki hennar......nei nei bara djók

Ég er að meina þetta:
http://www.visir.is/article/20080618/IDROTTIR03/769312968Ég er í 7da himni. Ég táraðist, brosti, hló, hoppaði og ældi nánast úr stressi þetta kvöld. Loxins, eftir alla þessa bið hef ég upplifað þetta, Gleymi þvæi aldrei þegar ég sá NBA auglýsinguna á Stöð2, árið 1986, þegar meistari Larry bird hélt á bikarnum í hópi mikilla NBA hetja og ég ákvað að halda með liðinu sem maðurinn í græna búningnum var í

Eftir 22 ára bið hef ég loxins upplifað þessa tilfinningu, og hef á þeim tíma skipst á ansi mörgum orðum við marga mæta menn ;D hehe en aldrei gefið upp vonina.
Yess, þetta er æðislegt, ég græt eins og Garnett gerði í leikslok. Hann átti þetta svo skilið...og pierce líka.....og .....og....og bara allir....YESSSSSS!!!!
A.
»
27.04.2008 12:51:20 / Norm
....að sonur minn sé efni í þennan fróðlega Einar þarna gosþambarann mikla

Málið er að hann elskar gosflöskur og að leika sér með gosflöskur, tómar jafnt sem fullar. Þegar maður fer með hann í verslanir stoppar hann iðulega fyrir framan gosrekkana og starir löngunaraugum á allr þessar girnilegu gosflöskur
Eini munurinn sem ég sé kannski á þeim er sá að Alexander hefur líka gaman af að handfjatla bjórdósir en ég veit ekki til þess, enn sem komið er allavegana, að það sé í einhverju uppáhaldi hjá téðum Einari. Guð forði honum allavega frá því, úff á það bætandi, hann í áfengisvímu ofan á allt saman

(Ekki það að Alexander sé súpandi á þessu, þær eru tómar eða vel lokaðar) En allavegana ég er drullusmeykur og sífellt veltandi þessu fyrir mér...en hann er þó til friðs á meðan

A.
»
22.04.2008 20:45:17 / Norm
...oftast hef ég nú ekki þolað drenginn
, en í kvöld dýrka ég han
Takk, takk. Var það bara ég, eða sáu fleiri svekkelsissvipinn á Hödda Magg í leikslok? því hefur hann ekki verið svona áður eftir leiki með Liverpool. Það er af því hann er ekki starfi sínu vaxinn og kann ekki að leyna hlutdrægni sinni. Að sleppa því að lýsa Liverpool leikjum er ekki að leyna hlutdrægni sinni.
A.
»
01.02.2008 18:39:41 / Norm
....ég ætla að vera Gummi í Byrginu á öskudaginn. En þið?
A.
»
09.01.2008 09:59:53 / Norm
Las þennan í ESPN magazine, varðað lát´ann fljóta hingað:
"Celtics @ Bulls
Bulls fan wakes up from a long nap: No prob, Boston cant stop Garnett. Huh? He´s a Celtic, not a Bull?! Well, we must have Kobe then, and a head-to-head with Garnett is a must-see. Wait, we wouldn´t give up Luol Deng? Zzzzzzz......"

A.
P.S. Hvaða leppalúðar kusu ekki Boston í skoðanakönnuninni minni hér til hliðar, jahh eða kusu virkilega "einhverjir aðrir", eru menn alveg freðnir eða?!
»
Síður:
1 2 3 ...
16